Fara beint í efni

Um félagið

Eitt elsta starfandi félag á Íslandi

Hið íslenska bókmenntafélag
Innsigli félagsins, stofnað 1816

1816

01

Grundvallarstefna

Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað árið 1816 og hefur starfað óslitið síðan.

Það tók við hlutverki Hins íslenzka lærdómslistafélags sem stofnað hafði verið 1779, en starfsemi þess lá niðri um þær mundir sem Bókmenntafélagið var stofnað. Voru félögin formlega sameinuð árið 1818.

„Grundvallarstefna þess var að reisa við sjálfstæðar menntir og menningu á Íslandi undir forystu Íslendinga sjálfra.“

02

Hlutverk í dag

Félagið gefur út fræðirit og almenn rit, ritröðina Íslenzk fornrit og tímaritið Skírni, sem komið hefur út frá árinu 1827.

Bókasala félagsins er við Hagatorg í Reykjavík.

03

Úr útgáfunni

  • Kápa bókarinnar Þættir úr sögu vestrænnar menningar. Fornöldin
  • Kápa bókarinnar Þættir úr sögu vestrænnar menningar. Miðaldir
  • Kápa bókarinnar Þættir úr sögu vestrænnar menningar. Nýöldin 1492-1848
  • Kápa bókarinnar Þættir úr sögu vestrænnar menningar.  Frá 1848 til okkar daga
  • Kápa bókarinnar Þættir úr Íslandssögu. Frá landnámi til 1820

Þættir úr sögu vestrænnar menningar og Þættir úr Íslandssögu — samstæð ritröð félagsins.

04

Stjórn og starfsfólk

Stjórn og starfsfólk
NafnHlutverk
Ármann JakobssonFormaður
Björg ThorarensenVaraformaður
Reynir AxelssonMeðstjórnandi
Auður HauksdóttirMeðstjórnandi
Þorsteinn HilmarssonMeðstjórnandi
Snjólaug ÓlafsdóttirMeðstjórnandi
Salvör NordalMeðstjórnandi
Kristján GarðarssonBókavörður
Ólöf Dagný ÓskarsdóttirFramkvæmdastjóri

05

Félagsaðild

Félagsmenn eru áskrifendur að Skírni – Tímariti Hins íslenska bókmenntafélags – sem kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Árgjald greiðist við útkomu hvors heftis, um 5.490,- krónur, eða samtals um 10.980,- krónur á ári.

Jafnframt fá félagsmenn 20% afslátt af verði rita félagsins, eins og það birtist í verðskrá – aðrir fá 10% afslátt.

06

Auðkenni

Kennitala 620169-7659 · VSK-númer 10965

Hafa samband